Tanntæknir/Aðstm.tannlæknis

Við erum að leita að starfskrafti á tannlæknastofuna okkar á Akranesi. Um er að ræða 90-100% starf. Umsækjandi þarf að geta hafið störf eigi síðar en 1.júlí. Um er að ræða starf í móttöku, aðstoð við stól og vinna við dauð- og sótthreinsun.

Hæfniskröfur:

  • Við erum fyrst og fremst að leita að tanntækni eða starfsmanni með reynslu af störfum á tannlæknastofu.
  • Umsækjandi þarf að tala og skrifa á íslensku og vera samtalsfær á ensku.
  • Góð almenn tölvukunnátta.
  • Aðrir eiginleikar sem við leitum að, er rík þjónustulund, sveigjanleiki og frumkvæði.
  • Þarf að geta starfað undir álagi og hafa áhuga á mannlegum samskiptum.

Umsóknir með ferilskrá og meðmælum ef einhver eru sendist á tennur@simnet.is