FÁ – Brúarnám Tanntækna

Á aðalfundi félagsins 20.apríl 2026 var kynnt ný námsleið við Fjölbrautarskólann í Ármúla sem kallast Tanntæknabrú FÁ og fer námsbrautin af stað í haust.

Brúarnám er ætlað aðstoðarmönnum tannlækna sem hafa unnið á tannlæknastofu að lágmarki í 5 ár og eru í amk.80% starfi.

Þær sem hafa áhuga á að skrá sig í þetta nám ættu að senda póst á run@fa.is fyrir 15.maí 2026, þar sem fram kemur fullt nafn kennitala og netfang viðkomandi

Með umsókn um brúarnám þarf að fylgja staðfesting frá FTAT um að viðkomandi sé með 5 ára starfsreynslu á tannlæknastofu. Senda má tölvupóst á skrifstofu félagsins og óska eftir staðfestingu á starfsreynslu.