Tanntæknir óskast í 70-100% starfshlutfall
Á tannlæknastofunni Krýnu eru um 23 starfsmenn, þar af almennir tannlæknar, sérfræðingur, tannfræðingar, tannsmiðir, tanntæknar og aðstoðarfólk.
Við leggjum áherslu á fagleg vinnubrögð, góða vinnustaðamenningu, sem skilar sér bæði til viðskiptavina og ekki síður starfsfólks.
Við fluttum í glæsilegt nýtt og endurgert húsnæði 28.október s.l og er stofan búin nýjustu og fullkomnustu tækjum sem völ er á.
Verkefni tanntækna hjá Krýnu eru fjölbreytt en þar má nefna:
- Aðstoð við tannlækna, við vinnum fjórhent við alla stóla.
- Sótthreinsun/dauðhreinsun tækja og tóla.
- Myndatökur.
- Pantanir.
- Símsvörun.
- Aðstoð í móttöku og fleira tilfallandi
Menntunar- og hæfniskröfur
- Tanntæknir (eða sambærileg menntun).
- Reynsla af starfi á tannlæknastofu er kostur.
- Góðir samskipta- og skipulagshæfileikar.
Vinnutími og endanlegt starfshlutfall verður skipulagt í samráði við umsækjanda
Nánari upplýsingar má nálgast hjá Hrafnhildi (Búbbu) starfsmannastjóra Krýnu hrafnhildur@kryna.is