Tanntæknir – 90% starf
Upphafsdagur 15.ágúst 2025
Umsóknarfrestur 1.júlí 2025
Um okkur
Tannlæknasofan er níu manna teymi, þar af tveir almennir tannlæknar og einn tannréttingasérfræðingur. Sérfræðingurinn óskar eftir tanntækni til liðs við sig og teymið. Lögð er áhersla á fagleg vinnubrögð, vinalegt umhverfi og persónulega þjónustu við skjólstæðinga.
Helstu verkefni:
- Klínisk aðstoð við meðferð sjúklinga við tannlæknastól
- Sótthreinsun tækja og aðstöðu
- Myndataka og undirbúningur gagna fyrir meðferð
- Almenn þjónusta: pöntun tækja, skráningar og pappírsvinna
- Önnur tilfallandi verkefni eftir þörfum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Tanntæknir (eða sambærileg menntun)
- Reynsla af starfi á tannlæknastofu er kostur
- Góð færni í samskiptum og teymisvinnu
Vinnutími
- Mánudaga til fimmtudaga kl. 08:00 – 16:00
- Annan hvern föstudag kl. 08:00 – 13:00
Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á heimsíðunni spangir.is
https://www.alfred.is/starf/tanntaeknir-a-tannlaeknastofu-i-kopavogi