Tannbjörg Hlíðarsmára

Jákvæður og sveigjanlegur starfsmaður óskast í 100% framtíðarstarf!

Ertu lagin(n) í mannlegum samskiptum og hefur gaman af því að vinna með fólki á öllum aldri?

Við leitum að öflugum einstaklingi í stöðu tanntæknis/aðstoðarmaður tannlæknis.

Viðkomandi þarf að:

  • Vera 25 ára eða eldri
  • Búa yfir góðri samskiptahæfni og jákvæðu viðmóti
  • Vera stundvís, sveigjanlegur og góður að vinna í hóp
  • Vera reyklaus (skilyrði)

Ef þú vilt vinna skemmtilegt starf í góðum hópi hvetjum við þig til að sækja um á tannbjorg@tannbjorg.is

Umsóknarfrestur er til 4. janúar 2026