Opnað hefur verið fyrir móttöku umsókna um orlofseignir félagsins fyrir sumarið 2026.
Móttaka umsókna er opin frá 18.febrúar – til og með 2.mars 2026.
Úthlutun mun liggja fyrir 5.mars 2026 og verður tilkynnt félagsmönnum með tölvupósti.
Orlofseignirnar eru tvær, orlofshús í Húsafelli og íbúð á Akureyri.
Sumartímabilið er júní, júlí, ágúst og sótt er um eina viku í senn.
Leigutímabil er ávallt frá föstudegi til föstudags.
Vikudvöl kostar 36.000,-
Opið er fyrir umsóknir um sumarleigu frá 18.febrúar – 2.mars 2026
Úthlutun mun liggja fyrir 5.mars 2026 Hægt er að sækja um á heimasíðu félagsins www.ftat.is, senda tölvupóst á ftat@ftat.is eða hafa samband við skrifstofu í síma 571-0585