Orlofshúsið er í Húsafelli, þrjú svefnherbergi með rúmum fyrir sex manns ásamt fjórum dýnum á svefnlofti. Sængur og koddar miðast við það. Barnarúm samanbrotið, barnastóll.
Húsið er fullbúið með þeim heimilistækjum sem vera ber, ásamt heitum potti og gasgrilli. Húsbúnaður miðaður við 10 manns. Húsið stendur við Stuttárbotna 4.
Umsjónarmaður orlofsshússins á svæðinu er Sigríður – gsm 892-3468
- Vikuleiga er kr. 36.000.- helgarleiga kr. 19.500.-
- Vikuleiga frá september til maí kr. 33.000.- Aukanótt-dagur kr. 5.500.-
Komutími vegna vikuleigu er eftir kl 16:00 á föstudegi brottför fyrir kl 13:00 viku seinna. Helgarleiga, komutími eftir kl 16:00 á föstudegi brottför sunnudagskvöld/brottfarakvöld fyrir kl.19.
Félagsmenn! gangið vel um og munið að þetta er ykkar eign.
Leigutaka ber að vera á staðnum umsamið tímabil og óheimilt er að framselja leigutímabil.
Við minnum á að dýrahald er ekki leyfilegt í orlofshúsum félagins
Sendið okkur tölvupóst á netfangið ftat@ftat.is til að panta orlofshús.
Vinsamlegast leggið inn á reikn: 515-26-633570, kt: 680180-0679 og sendið staðfestingu frá banka á netfang: ftat@ftat.is og mun leigusamningur verða sendur með upplýsingum til baka.