Aðstoð á tannlæknastofu

Tannlæknar Höfðabakka óska eftir tanntækni eða aðstoðarmanni tannlæknis í um 63% starf.

Vinnutími er þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga frá kl. 9.00 – 16.30.

Helstu verkefni

Klínísk aðstoð við meðferð sjúklinga við tannlæknastól, sótthreinsun tækja og aðstöðu og önnur tilfallandi störf.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Tanntæknir (eða sambærileg menntun)
  • Reynsla af starfi á tannlæknastofu er kostur
  • Góð færni í samskiptum og teymisvinnu

Á stofunni er lögð áhersla á fagleg vinnubrögð, vinalegt umhverfi og persónulega þjónustu vð sjúklinga.

Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Nánari upplýsingar um tannlæknastofuna má nálgast á heimasíðunni jaxl.is.

Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband með því að senda ferilskrá á netfangið mottaka@jaxl.is.