
Opið verður fyrir móttöku umsókna um orlofshús félagsins fyrir sumarið 2022 frá 15. mars 2022 til og með 5. apríl 2022. Orlofshúsin eru tvö, í Húsafelli og á Akureyri. Sumartímabilið er júní, júlí og ágúst og sótt er um eina viku í senn frá föstudegi til föstudags. Vikudvölin kostar kr. 36.000.- Hægt er að sækja um á heimasíðu félagsins www.ftat.is eða með því að senda tölvupóst á ftat@ftat.is . Einnig er hægt að hringja á skrifstofuna í síma: 571-0585.